Mest Fabulous
The Workplaces
Herbalife :)
29.06.2008 13:30:30 / moli

sumarfrí vei vei vei



Einstaklega skemmtileg auglýsing... :)

Annars er það helst að frétta að ég er kominn í sumarfrí! í heilan mánuð!
Svo förum við til Finnlands á miðvikudaginn. Get ekki beðið! vei vei vei

svo er ég nottla búinn að vera að bíða eftir því að síminn hringi... en hann gerir það ekki... veit ekki af hverju... kannski vegna þess að ég ER EKKI MEÐ VINNUSÍMANN!!!

yndislegi friður hahahaha

eníhú

be seen

júdas lúsifer kveður


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 17:03:04 / moli

Ég hef þá aldrei séð það betra!

það er víst ekki lengur hægt að hafa þetta myndband beint á síðunni en ég bendi áhugasömum á að smella á þennan link: http://youtube.com/watch?v=Kx_aJnrISGU



Það gerist ekki mikið betra en þetta! :)

be seen

júdas lúsifer kveður


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.05.2008 22:49:56 / moli

já nú er ég hissa!

ísland komst áfram í dag! ég hafði ekki mikla trú á því en mikið er ég samt ánægður, pínu púkó að taka alltaf þátt en komast ekki upp úr undankeppni ár eftir ár.

annað samt meira skemmtilegt!!! eruði tilbúinn???

það er komið lítið barn á heimilið!!! ójá ójá lítill loðbolti!!! við eigum núna kettling!!! algjör kleina! kisan er svo sæt að mig langar að borða hana! og strax búin að læra að fara í sandkassann! mommy is so proud!

hún kúkaði reyndar einu sinni á teppið en við leyfum nú ein mistök áður en maður gefst upp og lógar dýrinu! hahahahaha djók ég er ekki svona krúl!

svo á nadía afmæli á morgun... verður fimm ára stúlkan sú! hún var rúmlega tveggja þegar ég hitti hana fyrst!

annars er ég búinn að vera umvafin börnum eitthvað undanfarið... var að passa systkini mín í gær svo að mamma gæti farið á tónleika með honum jón okkar fógartí!

segjum þetta gott í bili...

be seen

júdas lúsifer kveður

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2008 21:48:11 / moli

kvikmyndir kvikmyndir

já ég skal segja ykkur það!

við hérna heima erum búnir að skrifa núna fullt af myndum svo það er nóg að horfa á! ójá ójá! tók mig meira að segja til og bjó alvöru dvd úr ratatouille sem ég náði í! með svona "play" og "scene selection" í staðinn fyrir valmyndina sem er venjulega... þið sem eruð nörd vitið hvað ég er að tala um!

annars var gamli dívídí ekki alveg að gera sig varðandi allt þetta (takk samt bróðir) þannig að við töltum bara út í búð og keyptum nýjan... nenntum ekki þessu brjóta upp þetta og brjóta upp hitt... i live for simplicity! hehehe

vorum að horfa á book of secrets rétt í þessu... bara virkilega fín mynd, svo fórum við reyndar líka í bíó í gær líka og sáum iron man og hún var virkilega skemmtileg! hitt er þó annað mál hvað kostar að fara í bíó nú á dögum... 1050 kr!!! já ég lýg því ekki! í það heila voru þetta 3500 kr fyrir tvo!!! (ég þarf svo mikið popp júmbó og ekkert annað).

þetta er bara orðin lúxus fyrir ríka... fólk eins og mig sem sagt! HAHAHAHAHAHAHAHAHA

jæja... klukkan er 21:47 og minns þarf að fara í göngutúr... regular exercise you see!

be seen

júdas lúsifer kveður

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 19:38:32 / moli

Endurvakning! :)



ég og marta erum sum sé búin að endurvekja línuskautana... erum þegar búin að rúnta nokkrum sinnum í gegnum hafnarfjörðinn! mega stuð!!!

þar fyrir utan hafa bæst í hópinn biggi og jóhanna þannig að núna erum við orðin
team... eða öllu heldur BLADES OF FURY!!!

HAHAHAHAHAHAHAHAHAHA

þokkalega feitt kreisí og gaman... ég er meira að segja bara búinn að detta einu sinni...! just once i tell you!

en grey jóhanna hefur ekki verið alveg jafn heppin... ég þakka bara fyrir að konan er
búin til úr stáli... annars væri hún dauð barasta...

eníveis... planið er að vera gegt brúnn og fit fyrir sumarfrí svo heill mánuður
geti farið í slökun og leti.

first we work hard and then we play hard... hljómar eins og plan í mínum eyrum.

until then...

be seen

júdas h. lúsifer kveður

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2008 23:05:59 / moli

Nýtt uppáhalds lag :)



já við hérna í þúfubarðinu erum mikið búin að syngja þetta lag... mjöööög hátt... en annars er netið komið... finally, hrikalegt að vera netlaus svona lengi og ekki fá neina þjónustu af neinu tagi... vodafone er ekki að skora hátt sem stendur!

annars var ég að horfa á myndbandið við this is my life og mér finnst það ekkert smá fyndið! þessi dúddi sem er alltaf þarna er svo svakalegur eitthvað með þessa málningu og alles!!! hahaha

en until later...

be seen

júdas lúsifer kveður

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.04.2008 21:33:36 / moli

18 days and counting...

já nú eru komnir 18 dagar síðan ég bað um að netið yrði flutt upp um eina hæð og það er ekki ennþá komið. Vodafone ætlar ekkert að geta staðið sig í þessu og það er ekki beint verið með neinar gáfur þegar maður hringir í þjónustuverið...

kemur sónn hjá þér?
af hverju ætti að koma sónn? ég er ekki með heimasíma...

get ég sent staðfestingu á email hjá þér?
jájá en ég er ekki með netið!!!!!!

fullt af svona hlutum... ekki beint verið að vaða í vitið... guð gaf sumum aðeins minna en öðrum!

hér situr maður með mörtu, gústa og nadíu... búin að borða 1 kg af nammi... það er laugardagur sjáiði til... og búin að vera í ljós... bökuð við 150° í 12 mín á hvorri hlið... hahahaha

en vitiði hvað????

sumarið er að alveg að verða komið!!! það hringdi í mig og sagðist vera á leiðinni!!! vei vei

later biatches

be seen

júdas lúsifer kveður

» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2008 15:13:12 / moli

Að horfa á myndband...

Var að klára að horfa á Ratatouille... er búinn að eiga hana lengi og ákvað loks í dag að horfa á hana og vá hvað hún er skemmtileg. Maður hefur svosem séð margar myndir þar sem dýr eru eins og fólk og allt í þeim dúr en þessi er bara svo mikið skemmtilegri að mínu mati.

Marta og Ingi eru núna í London town having a blast og ég sit einn heima. Gústi er í vörutalningu. Þarf að klára svót aður en ég fer að dæma í kvöld.

Urg, hér sé ekkert að borða og ég er svangur... hvað á maður að gera? Ef ég væri ekki svona latur þá myndi ég kannski fara út í búð og kaupa eitthvað en já... ég einfaldlega nenni því ekki. Æ svo er samt svo gott veður að mig langar út í göngutúr...

Choices choices...

Varpaði spurningu á nokkra í vinnunni sem er frekar erfið og ekki auðsvöruð. Ef þú mættir velja eitt lag, bara eitt, hvaða lag myndirðu velja sem þitt all-time-favorite-langbesta lag í öllum heiminum fyrr og síðar?!

Það er ekki auðvelt að svara þessu vegna þess að flestir eiga mörg lög sem fara eftir skapi hvers og eins hvenær þau eiga við.

Mitt er nú samt 4 My People með Missy Elliott. Það fylgir svo margt því lagi og vildi svo skemmtilega til að það lag kom strax upp í hugann hjá mér.

Skil ykkur eftir með þessa tónlistarpælingu...

be seen

júdas lúsifer kveður

» 3 hafa sagt sína skoðun

18.02.2008 19:56:30 / moli

ok... ok, ok... ok... ok... ok, ok...

vá hvað er langt síðan síðast... ætli einhver komi yfirleitt hingað inn lengur... veit ekki... kemur bara í ljós...

allt orðið breytt hérna barasta... maður er orðinn hluti af visir.is og læti barasta...

núna er ég aleinn heima... allir farnir út... allir voru svangir og pirraðir og umræðan komin í hringi... hahaha svona er þetta þegar maður er náinn og fólkið býr allt í sömu byggingunni... :haha:

keppnir og sumarfrí framundan... megastuð... vei vei

oh my god hvað ég er svangur... megi örbylgjan núka matinn hratt og örugglega!!! annars fer ég bráðum að tyggja klóstpappír... hahahahahahaha

gaman hvað lífið er annars fullt af uppákomum... ætla reyndar ekki að fara eitthvað náið út í það en alltaf þegar maður lokar dyrum opnast aðrar... það er aldrei ekkert að gerast... jú lífið vissulega gengur sinn vanagang en ávallt með smá tvisti...

magnað hvernig það kemur alltaf aftan að manni... ekki að það sé endilega slæmt að eitthvað komi "aftan að manni"... har har har :lol:

vildi bara rétt láta í mér heyra... kannski get ég núna drullast til að pára eitthvað hér aðeins oftar... þetta er bara eins og ræktin... sleppur einum degi og þá er þvílíkt erfitt að byrja aftur...

maður á einfaldlega ekki að hætta... svona er nú það...

be seen

júdas lúsifer kveður

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 12:12:49 / moli

almost... almost done!

hér sit ég... úldnari en nokkru sinni fyrr og marta komin á bensínljósið... aldrei þessu vant...

 

mamma hringdi í mig klukkan 11 og vakti mig... það vita flestir hvað mér finnst um það... hafði enga hugmynd um hvað hún var að tala um... en svo eftir smá spjall fóru tenglarnir í heilanum að virka smá... hahaha...

 

þannig að... núna sit ég hér og bíð eftir hringingu frá vinnunni... allt á floti, kviknað í og marta bensínlaus....

 

en þetta lýkur senn... tveir dagar í aðfangadag... svo minnkar klikkunin... en þetta er nú samt gaman... þeir taka á þessir löngu dagar en þeir eru nú þess virði...

 

það fólk sem ég veit símann hjá fær kveðju frá mér í smess formi en þið hin öll:

 

GLEÐILEG JÓL!!! FLIPP OG MEGASTUÐ!!!

 

be seen

 

júdas h. lúsifer kveður


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 22:40:03 / moli

coffee and...

Er þetta ekki allt sem þarf til að maður sé góður á því? Jahh, ég held það barasta...

 

be seen

 

júdas h. lúsifer kveður


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 20:06:17 / moli

hvað er klukkan birgir?...

...spyr þjóðin og syrgir!

 

já það hefur svosem ekki margt drifið á daga mína undanfarið... búinn að fara á eitt jólahlaðborð, annað eftir...

 

er í raun bara að bíða eftir jólunum, ekki af því að mig hlakkar til... nei, bara vegna vinnunnar! ætlum að toppa síðasta ár töluvert! það er eins gott að við náum að þrefalda sölu síðasta árs... þarf maður ekki annars að eiga eitthvað svona takmark???

 

fórum í hagkaup í dag... í holtagörðum... og hjálpi mér allir guðs englar... þetta var oggu svona eins og í bíómyndum, þegar maður snýst í nokkra hringi og myndavélin með nottla... svo sturlast maður... hávaði og læti og maður pínu ráfaði bara um í villu og vissi ekkert hvar maður var... og meðalaldur starfsfólks var 12.

 

svo á litla "hnetan" systir mín afmæli 4. des en það verður haldið upp á það þann 2. þannig að við erum að fara í ammlipartí!

 

borðaði áðan weekend steak... ekkert smá gott... misstir af miklu marta...

 

be seen

 

júdas h. lúsifer kveður


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 22:37:56 / simbi

Grand-fiesta partý 10-11....

Þar sem allt fór úr böndunum hahahaha

Setti inn skemmtilegar myndir þar sem þið getið skoðað!!

 Bara gaman :)

 Myndirnar eru undir heitinu Grand-Fiesta

 kv.

Gústi


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 13:25:30 / moli

já þannig er nú það...

móses, jesús og gamall maður voru að spila golf. næsta hola er umlukin vatni. móses slær kúluna og hún lendir beint í vatninu. hann gengur að vatninu og lyftir höndum og þá klofnar vatnið í tvennt, hann slær kúluna og hún lendir rétt hjá holunni.

 

jesús er næstur. hann slær kúluna og hún lendir beint í vatninu. hann gengur á vatninu og þegar hann nálgast kúluna flýtur hún upp og hann slær hana þannig að hún lendir rétt hjá holunni.

 

loks á gamli maðurinn að gera. hann slær kúluna og þegar hún er við það að lenda í vatninu stekkur silungur upp úr því og gleypir kúluna, áður en silungurinn nær að lenda aftur í vatninu flýgur fálki að og grípur silunginn. fálkinn kemst ekki langt áður en elding lýstur í hann þannig að silungurinn dettur á grasflötinn og golfkúlan hrekkur upp úr honum og beint í holuna. HOLA Í HÖGGI!

 

jesús: FJANDINN HAFI ÞAÐ, PABBI!!! að þú skulir ekki geta spilað golf eins og venjulegt fólk!

 

be seen

 

júdas h. lúsifer kallaður júlli kveður!


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Leitarbox

Dagsetning
27. janúar 2012
Dagatal
janúar - 2012
S M Þ M F F L
1234567
891011121314
15161718192021
22232425262728
293031
FyrriNæsti